Fyrir ykkur sem búið ekki svo vel að lesa arabísku útlegst fyrirsögnin einhvernveginn svona:
"Kakkalakka Jihad II, endirinn".
Þá er síðari lota mín í baráttunni við ógeðfeldu sambýlingana á enda.
Ég hef semsagt barist í 2 vikur við 6 fætta gaura með stóóóra fálmara. Þeir hafa birst í öllum stærðum á bilinu 2mm og upp í 3cm kvikindi. Ég fæ hroll niður bakið bara við það að skrifa þetta. Þið ættuð að sjá mig með meter af eldhúspappír upprúllaðann til þess að myrða stærstu gerðina. Ég hreyfi mig hægt og passa upp á að bráðin heyri ekki neitt þrusk, því þá er hún fljót af stað. Bið svo eftir því að hún er vel staðsett, á miðju gólfi eða vegg, og hamra eldsnöggt með pappírnum á kvikindið. Á meðan á þessu stendur öskra ég eins og Hjalti Úrsus og Jón Páll í *trukkadrætti á góðum sumardegi í Skotlandi. Þvílíkum hroll og adrenalínflæði hef ég ekki fyrr kynnst. Það er verst þegar maður hittir ekki og kvikindið hleypur í burtu, helst undir sófa. Þá fyrst öskra ég.
Jæja, ég hef nú svo sem ekki bara beitt veiðieðlinu gegn þeim. Þegar ég varð fyrst var við þá rölti ég til félaga minna í Inspektor deildinni. Þeir höfðu greinilega heyrt áður minnst á svona sambýlinga.
Siggi: "Jeg tror jeg har fundet nogle kakalakker i min bolig..."
Inspektor: "Noh, kakalakker, det er ikke sjovt".
Siggi: "ööö, nej det er det ikke..."
Því næst fékk ég massafínan eiturbrúsa til afnota. TRINOL 810, dugar ekkert minna! Þeir ráðlögðu mér hvert væri best að sprauta og báðu mig svo um að endurtaka sprautunina 2 vikum seinna, sem er einmitt núna.
Ég get sagt ykkur að það skriðu nokkir fram á gólfið til að njóta síðasta andardráttarins fyrir dauðann. Börn og fullorðnir, allir lágu þeir í valnum áður en yfir lauk. Efnavopnastríð er subbulegt, en tilgangurinn helgar meðalið. Þetta er fyrirbyggjandi stríð a la Bush/Blair/Oddsson, drepum þá áður en þeir drepa okkur, ekki satt. Sannkristilegt hugarfar í tilefni komandi hátíðar.
Ég ætla nú að sprauta reglulega fram að jólafríi til öryggis.
*trukkalessur, trukkadráttur? Einhver tengs? Beini þessari spurningu til málfróðra.
4 stykki:
OMG! Má ég þá heldur biðja um mínar sætu silfurskottur (sem einmitt kíktu í hópferð um helgina eftir langt hlé). Þær létu 4 lífið og hafa síðan haft sig hægar.
En kakkalakkar, það er bara viðbjóður.
hversu margir hafa svo kysst þig í svefni sæti högni....ég vona að þú sért samt laus við þá... get ekki ímyndað mér að þeir kyssi vel
Mig hefur í það minnsta dreymt þá... Já ég held (vona) að ég sé búinn að slátra þeim
Lýsingin minnir mig á góða hæku eftir pabba, hún var reyndar um sifurskottur; feður, mæður, börn...
Æ, nenni ekki upp á 4. hæð (ÞBH)til að fletta henni upp;( sohhh mikið að læra í tölfræðinni.
Slengi henni inn þegar hún upprifjast.
Svo er það náttlega alltaf Bubbi..."feður og mæður, börn ykkar munu st.."
Muna bara að líkhreinsa áður en ég kem skan.
Annars er ég svo þróunarfræðilega brengluð að ég hræðist ekkert nema fugla og flugvélar - sem Linné hefur örugglega sett í sama flokk.
Luvs
Huld
Sendu inn athugasemd
Skrifaðu eitthvað fallegt